Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   mán 09. febrúar 2026 21:38
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Malen kom Roma aftur á sigurbraut
Donyell Malen skoraði bæði mörk Roma
Donyell Malen skoraði bæði mörk Roma
Mynd: EPA
Roma 2 - 0 Cagliari
1-0 Donyell Malen ('25 )
2-0 Donyell Malen ('65 )

Hollenski sóknarmaðurinn Donyell Malen skoraði bæði mörk Roma sem vann 2-0 sigur á Cagliari í Seríu A á Ítalíu í kvöld.

Malen kom til Roma á láni frá Aston Villa í síðasta mánuði og byrjað vel með Rómverjum.

Hann skoraði frábært mark á 25. mínútu er miðvörðurinn Gianluca Mancini sendi hann í gegn hægra megin. Malen var kominn í þrönga skotstöðu, en náði einhvern veginn að lyfta boltanum yfir markvörð Cagliari og í netið. Afgreiðsla í hæsta gæðaflokki.

Malen var aftur á ferðinni fjörutíu mínútum síðar eftir laglegt einstaklingsframtak frá tyrkneska landsliðsmanninum Zeki Celik, sem hristi af sér varnarmenn Cagliari, hljóp upp að endalínu og kom boltanum fyrir á Malen sem potaði boltanum inn fyrir línuna.

Þriðja mark Malen síðan hann kom frá Villa og mikilvægt í ljósi þess að Roma var án sigurs í síðustu tveimur deildarleikjum.

Roma er í 5. sæti deildarinnar með 46 stig og í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti en Cagliari í 12. sæti með 28 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 27 22 1 4 64 21 +43 67
2 Milan 27 16 9 2 43 20 +23 57
3 Napoli 27 16 5 6 41 28 +13 53
4 Roma 27 16 3 8 37 19 +18 51
5 Como 27 13 9 5 44 20 +24 48
6 Juventus 27 13 8 6 46 28 +18 47
7 Atalanta 27 12 9 6 37 24 +13 45
8 Sassuolo 27 11 5 11 34 36 -2 38
9 Bologna 26 10 6 10 35 32 +3 36
10 Lazio 27 8 10 9 26 27 -1 34
11 Parma 27 8 9 10 20 32 -12 33
12 Udinese 26 9 5 12 28 39 -11 32
13 Cagliari 27 7 9 11 29 36 -7 30
14 Torino 27 8 6 13 27 47 -20 30
15 Genoa 27 6 9 12 32 39 -7 27
16 Fiorentina 26 5 9 12 30 39 -9 24
17 Cremonese 27 5 9 13 21 38 -17 24
18 Lecce 27 6 6 15 18 36 -18 24
19 Pisa 26 1 12 13 20 43 -23 15
20 Verona 27 2 9 16 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner
banner