Slóvakía er í hæsta sæti á heimslistanum af liðunum í drættinum. Stanislav Lobotka hjá Ítalíumeisturum Napoli er lykilmaður Slóvaka ásamt Milan Skriniar og Martin Dubravka.
Dregið verður í Þjóðadeild UEFA karla á fimmtudag í Brussel, höfuðborg Belgíu, og hefst drátturinn 17:00 að íslenskum tíma.
Ísland (74) féll úr B-deildinni í fyrra og verður í efsta styrkleikaflokki í C-deild ásamt Albaníu (63), Svartfjallalandi (82) og Kasakstan (114).
Innan sviga er staða liðanna á heimslista FIFA. Út frá listanum er Slóvakía sterkasta liðið í öðrum styrkleikaflokki, Belarús í þriðja og Lúxemborg í fjórða.

Annar styrkleikaflokkur
Finnland (75)
Slóvakía (44)
Búlgaría (87)
Armenía (105)
Þriðji styrkleikaflokkur
Belarús (98)
Færeyjar (125)
Kýpur (128)
Eistland (129)
Fjórði styrkleikaflokkur
Lettland (139) eða Gíbraltar (202)
Lúxemborg (102) eða Malta (161)
Moldóva (158)
San Marínó (210)
Í lok mars mætast Lettland og Gíbraltar annars vegar og Lúxemborg og Malta hins vegar í tveggja leikja einvígum um sæti í C-deildinni.
Athugasemdir