Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon var hetja Hearts er liðið vann gífurlega mikilvægan sigur gegn Hibernian í skosku úrvalsdeildinni í kvöld.
Tómas Bent byrjaði á bekknum en kom inn á þegar um stundarfjórðungur var eftir af leiknum.
Það tók hann ekki langan tíma að hafa áhrif á leikinn því hann skoraði með snyrtilegri afgreiðslu á 88. mínútu. Allt varð vitlaust á vellinum enda gæti markið orðið ótrúlega þýðingarmikið þegar talið er upp úr pokanum í lok tímabilsins.
Markið reyndist sigurmarkið, lokatölur 1-0. Hearts heldur því sex stiga forskoti á Rangers á toppi skosku deildarinnar. Rangers á leik til góða og því frábært að hafa þetta svigrúm.
Þetta er þriðja markið sem Tómas skorar í skosku deildinni en hann gekk í raðir Hearts frá Val síðasta sumar.
Hér fyrir neðan má sjá markið í skemmtilegri skoskri lýsingu.
????????| GOAL: WHAT A GOAL BY TOMAS MAGNUSSON.
— Futball Centa (@futballcenta) February 10, 2026
Hearts 1-0 Hibernian
pic.twitter.com/pnttXYfb3p
Athugasemdir




