Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   þri 10. febrúar 2026 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hamren ekki lengur með drifkraft til að þjálfa
Erik Hamren.
Erik Hamren.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Erik Hamren, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, segist vera hættur að þjálfa. Hann hafi ekki lengur þann drifkraft sem þarf til í starfið.

Hamren hefur verið án starfs frá því hann var rekinn frá Álaborg í Danmörku árið 2023.

Hinn 68 ára gamli Hamren hefur fengið mörg starfstilboð síðan þá, bæði frá félagsliðum og landsliðum, en hefur hafnað þeim öllum.

„Ég er hættur. Ég ákvað það fyrir meira en ári síðan, jafnvel tveimur árum," sagði Hamren.

„Ég hef ekki lengur þann drifkraft sem þarf til að vera þjálfari. Ég veit hvað þarf til og hef það ekki lengur. Þetta er búið."

Hamren segist hafa síðast fengið tilboð fyrir nokkrum mánuðum síðan. „Ég sagði nei, áður en við byrjuðum að tala um peninga. Þetta hefur aldrei snúist um peninga fyrir mig," sagði Hamren.

Hamren stýrði íslenska landsliðinu frá 2018 til 2020 og var hársbreidd frá því að koma liðinu inn á Evrópumótið. Hann stýrði meðal annars einnig Rosenborg og sænska landsliðinu.
Athugasemdir
banner