Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
banner
   þri 10. febrúar 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía í dag - Fabregas gegn Conte í bikarnum
Mynd: EPA
Ítalíumeistarar Napoli mæta Cesc Fabregas og lærisveinum hans í Como í 8-liða úrslitum ítalska bikarsins klukkan 20:00 í kvöld.

Como er komið í 8-liða úrslit í fyrsta sinn í 40 ár undir Fabregas á meðan Napoli kemur sér reglulega þangað.

Napoli hefur unnið bikarinn sex sinnum í sögunni, en Como aldrei unnið keppnina.

Fabregas er að mæta sínum gamla stjóra hjá Chelsea, en þeir unnu saman hjá Chelsea frá 2014 til 2018.

Leikur dagsins:
20:00 Napoli - Como


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner