Man Utd reynir við Ndiaye ef Barca kaupir Rashford - Reitz og Tonali orðaðir við Man Utd - Tekur Zidane við Real Madrid í þriðja sinn?
banner
   þri 10. febrúar 2026 22:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalski bikarinn: Ævintýrið heldur áfram hjá lærisveinum Fabregas
Como heldur áfram að gera frábæra hluti.
Como heldur áfram að gera frábæra hluti.
Mynd: EPA
Napoli 1 - 1 Como (6-7 í vítaspyrnukeppni)
0-1 Martin Baturina ('39 , víti)
1-1 Antonio Vergara ('46 )

Como er komið í undanúrslit ítalska bikarsins í annað sinn í sögu félagsins og í fyrsta sinn í 40 ár eftir sigur á Ítalíumeisturum Napoli í vítaspyrnukeppni í kvöld.

Cesc Fabregas er þjálfari Como en hann var í kvöld að mæta sínum gamla stjóra hjá Chelsea, Antonio Conte, sem stýrir Napoli. Það voru lærisveinar Fabregas sem tóku forystuna undir lok fyrri hálfleiks er Martin Baturina skoraði af vítapunktinum.

Í byrjun seinni hálfleiks jafnaði hins vegar Napoli þegar Antonio Vergara eftir undirbúning frá Rasmus Höjlund. Það voru bara 43 sekúndur búnar af seinni hálfleiknum þegar Vergara skoraði.

Leikurinn var rólegur eftir jöfnunarmarkið og var farið beint í vítaspyrnukeppni. Þar hafði Como betur og ævintýri þeirra heldur áfram en liðið er jafnframt í baráttu um að komast í Meistaradeildarsæti. Uppgangur Como hefur verið magnaður undanfarin ár.
Athugasemdir
banner
banner