Manchester United er áberandi í slúðurpakka dagsins og félagið er bæði orðað við sóknarmann og miðjumenn. BBC tók saman það helsta sem er í ensku götublöðunum og víðar.
Framtíð enska landsliðssóknarmannsins Marcus Rashford (28) hjá Barcelona hangir á forsetakosningum félagsins í næsta mánuði. Eitt af kosningaloforðum Joan Laporta er að kaupa lánsmanninn á 26 milljónir punda ef hann nær endurkjöri. (Times)
Manchester United mun reyna að fá senegalska framherjann Iliman Ndiaye (25) frá Everton ef Rashford verður seldur til Barcelona. (Caught Offside)
Manchester United vill fá þýska miðjumanninn Rocco Reitz (23) frá Borussia Mönchengladbach. Hann er metinn á um 35 milljónir punda. (Fichajes)
Sandro Tonali (25), sem er einnig á blaði hjá Manchester United, mun líklega vera með um 100 milljóna punda verðmiða hjá Newcastle. Arsenal, Manchester City og Juventus hafa einnig sýnt ítalska miðjumanninum áhuga. (Talksport)
Bournemouth planar að bjóða franska framherjanum Eli Junior Kroupi (19) nýjan og endurbættan samning til að reyna að fæla frá áhugasöm félög. Stórliðin Chelsea, Liverpool, Real Madrid og Paris St-Germain jafa sýnt honum áhuga. (Sun)
Manchester City undirbýr 100 milljóna punda sumartilboð í enska miðjumanninn Elliot Anderson (23) hjá Nottingham Forest. (Teamtalk)
Cristiano Ronaldo (41) mun hætta í verkfallinu og spila aftur fyrir Al-Nassr á laugardag. Hann hefur ekki spilað síðustu tvo leiki þar sem hann er ánægður með því hvernig félaginu er stýrt. (Sky Sports)
Bayern München er ekki lengur að horfa til Julian Alvarez (26) hjá Atletico Madrid. Arsenal á aukna möguleika á að fá argentínska sóknarmanninn. (Christian Falk)
AC Milan býst við því að Fulham muni nýta sér 21 milljóna punda ákvæði um að kaupa nígeríska vængmanninn Samuel Chukwueze (26) sem er á láni hjá enska félaginu. (Gazzetta)
Það gætu orðið stjórabreytingar hjá stórliðum í sumar en Luis Enrique segist vera virkilega ánægður hjá PSG. (Fabrizio Romano)
Real Madrid gæti reyynt að fá Jurgen Klopp en talið er þó líklegra að Zinedine Zidane snúi aftur og taki við liðinu í þriðja sinn. (ESPN)
Liverpool mun skoða stöðu Arne Slot ef liðið nær ekki Meistaradeildarsæti. (Football Insider)
Japanski miðjumaðurinn Daichi Kamada (29) mun yfirgefa Crystal Palace eftir tímabilið. Samningur hans rennur út í sumar og það eru engar viðræður um framlengingu. (Sky Sports)
Athugasemdir


