Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   þri 10. febrúar 2026 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Róbert Frosti fær hrós
Róbert Frosti Þorkelsson.
Róbert Frosti Þorkelsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Róbert Frosti Þorkelsson hefur heillað þjálfara sænska félagsins GAIS í æfingabúðum fyrir komandi keppnistímabil.

Hinn tvítugi Róbert Frosti gekk í raðir GAIS frá Stjörnunni á síðasta ári en hann kom aðeins við sögu í þremur leikjum í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Núna er GAIS að undirbúa sig fyrir nýtt tímabil og er Róbert Frosti búinn að standa sig vel.

„Frosti hefur tekið frábær skref. Ég verð að minnast á hann," sagði Fredrik Holmberg, þjálfari GAIS.

„Mér finnst hann hafa staðið sig mjög vel á æfingum og í leikjum. Það er meiri ákafi hjá honum og hann er þroskaðri. Hann hreyfir sig betur og lítur út fyrir að vera sterkari."

Sænska úrvalsdeildin hefst í apríl og það er vonandi að Róbert Frosti fái stærra hlutverk þegar deildin byrjar að rúlla á nýjan leik.
Athugasemdir
banner
banner