Man Utd reynir við Ndiaye ef Barca kaupir Rashford - Reitz og Tonali orðaðir við Man Utd - Tekur Zidane við Real Madrid í þriðja sinn?
   þri 10. febrúar 2026 15:13
Kári Snorrason
Sækja leikmann frá Arsenal eftir að Valdimar neitaði þeim
Mynd: Kalmar FF
Sænska félagið Kalmar hefur tryggt sér enska vængmanninn Charles Sagoe Jr. frá Arsenal eftir að Valdimar Þór Ingimundarson, leikmaður Víkings, hafnaði tilboði félagsins.

Sagoe hefur komið einu sinni við sögu í aðalliði Arsenal, þegar hann var í byrjunarliði í deildarbikarleik gegn Brentford fyrir rúmum tveimur árum.

Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur jafnframt verið í aðalliðshóp Arsenal en leikið með varaliðinu. Hann kemur til Kalmar á láni.

Kalmar hafði mikinn áhuga á Valdimar Þór Ingimundarsyni, leikmanni Víkings, fyrr í mánuðinum. Víkingur hafði samþykkt tilboð sænska félagsins en eins og fyrr sagði hafnaði Valdimar tilboði þeirra.

Kalmar komst upp úr B-deildinni á síðasta ári og verður því í Allsvenskan á komandi tímabili.

Athugasemdir
banner
banner
banner