Man Utd reynir við Ndiaye ef Barca kaupir Rashford - Reitz og Tonali orðaðir við Man Utd - Tekur Zidane við Real Madrid í þriðja sinn?
banner
   þri 10. febrúar 2026 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stórskemmtileg leið til að kynna nýja treyju
Timothy Chalamet kyssti merkið.
Timothy Chalamet kyssti merkið.
Mynd: TF1
Franska félagið Saint-Etienne kom stórleikaranum Timothy Chalamet á óvart þegar þeir fengu hann til að kynna nýjan búning félagsins er hann var í viðtali við franska sjónvarpsstöð.

Hinn þrítugi Chalamet hefur verið stuðningsmaður Saint-Etienne alla ævi.

Hann fæddist og ólst upp í Bandaríkjunum en faðir hans er franskur. Því hefur leikarinn frægi fylgst mikið með frönskum fótbolta og sérstaklega Saint-Etienne.

Chalamet var að kynna nýja kvikmynd sína, Marty Supreme, í viðtali við frönsku sjónvarpsstöðina TF1 þegar kynnirinn, Anne-Claire Coudray, rétti honum treyju.

Um var að ræða nýja treyju Saint-Etienne. Chalamet sá það og kyssti merkið strax. Hann klæddi sig svo í treyjuna sem var merkt honum. „Ég elskaði Matuidi, Dabo og Payet," sagði Chalamet svo í viðtalinu.

Þetta er sérstök treyja sem Saint-Etienne mun spila í undir lok tímabilsins.

Saint-Etienne er þessa stundina í frönsku B-deildinni en liðið er að berjast um að komast aftur upp í úrvalsdeildina.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið þegar Chalamet, sem er einn frægasti leikari heims um þessar mundir, fékk treyjuna.


Athugasemdir
banner
banner