Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leggur landsliðskóna á hilluna
Walker í leik með enska landsliðinu.
Walker í leik með enska landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kyle Walker hefur gefið það formlega út að hann sé hættur að spila með enska landsliðinu.

Walker spilaði 96 landsleiki fyrir England og var fulltrúi þjóðar sinnar á fimm stórmótum.

Walker, sem er orðinn 35 ára gamall, hefur ekki verið með í síðustu verkefnum og hann ætlar ekki að gefa lengur kost á sér. Hans síðasti landsleikur var gegn Senegal í Nottingham síðasta sumar.

„Ég er sorgmæddur að taka þessa ákvörðun en ég er líka mjög stoltur af því sem ég afrekaði með enska landsliðinu," sagði Walker.

Hann leikur í dag með Burnley eftir gríðarlega farsælan feril með Manchester City og Tottenham.

„Ég vil þakka öllum þeim landsliðsþjálfurum sem ég spilaði fyrir, Fabio Capello, Roy Hodgson, Gareth Southgate, Lee Carsley og Thomas Tuchel fyrir að gera draum minn að veruleika."
Athugasemdir
banner
banner