Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
   lau 04. apríl 2026 09:30
Fótbolti.net
Skiptar skoðanir á því hvort landsliðið sé á réttri leið undir stjórn Arnars
Eimskip
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Arnar Gunnlaugsson tók við sem landsliðsþjálfari í janúar 2025. Landsliðið hefur verið í þróun undir hans stjórn og nýir leikmenn tekið við sem kyndilberar.

Liðinu mistókst að halda sér í B-deild Þjóðadeildarinnar og endaði í þriðja sæti í sínum riðli í undankeppni HM.

Það hefur verið breyting á leikstílnum undir stjórn Arnars og nú þegar Þjóðadeildin bíður seinna á árinu settum við í hendur lesenda að meta hvort liðið væri á réttri leið.

Könnunin kom inn á forsíðu Fótbolta.net eftir tvö jafntefli í vináttulandsleikjum nú í glugganum; 2-2 gegn Kanada og 1-1 gegn Haítí.

Alls tóku 1.990 þátt í þessari könnun og vekur athygli hversu stór hluti er óviss í sinni afstöðu til spurningarinnar.

Er landsliðið á réttri leið undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar?
Já 41%
Nei 28%
Ekki viss 31%
Slapp
banner
banner