Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   lau 04. apríl 2026 16:07
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Ungu stjörnurnar leiddu ævintýralega endurkomu Bayern - Níu mörk í Leverkusen
Tom Bischof skoraði tvö glæsimörk fyrir utan teig
Tom Bischof skoraði tvö glæsimörk fyrir utan teig
Mynd: EPA
Lennart Karl var hetja Bæjara
Lennart Karl var hetja Bæjara
Mynd: EPA
Alex Grimaldo skoraði tvö í níu marka leik
Alex Grimaldo skoraði tvö í níu marka leik
Mynd: EPA
Þýskalandsmeistarar Bayern München voru án markakóngsins Harry Kane en það kom ekki að sök. Ungu stjörnurnar tóku við keflinu og leiddu ótrúlega endurkomu liðsins í 3-2 sigrinum á Freiburg í dag.

Kane var frá vegna meiðsla í ökkla en hann hefur verið þeirra helsta ógn í sóknarleiknum.

Bæjarar lentu 2-0 undir. Johan Manzambi skoraði í upphafi síðari hálfleiks og þá bætti Lucas Holer við öðru þegar tuttugu mínútur voru eftir.

Það var þá sem ungu stjörnunar í liði Bayern tóku málin í sínar hendur. Hinn tvítugi Tom Bischof minnkaði muninn á 81. mínútu með stórglæsilegu skoti fyrir utan teig í vinstra hornið og gerði hann síðan annað frábært mark á þriðju mínútu í uppbótartíma með öðru skoti fyrir utan teig, nema í þetta sinn sendi hann boltann í hægra hornið.

Hinn 18 ára gamli Lennart Karl reyndist síðan hetja Bayern seint í uppbótartímanum er hann skoraði af stuttu færi eftir frábæra fyrirgjöf Alphonso Davies.

Ótrúleg endurkoma hjá Bæjurum sem eru á toppnum með 73 stig, tólf stigum meira en Borussia Dortmund sem er í öðru sæti. Freiburg er í 8. sæt i með 37 stig.

Alex Grimaldo skoraði tvö fyrir Bayer Leverkusen sem vann Wolfsburg, 6-3, í stórskemmtilegum leik í Leverkusen.

Leverkusen fór 3-2 undir inn í hálfleikinn en hálfleiksræða Kasper Hjulmand hefur verið í hæsta klassa því Leverkusen kom inn í seinni með blóð á tönnunum og skoraði fjögur mörk.

Patrik Schick, sem hjálpaði Tékkum að komast á HM á dögunum, jafnaði úr vítaspyrnu og þá skoruðu þeir Edmond Tapsoba, Ibrahim Maza og Malik Tillman allir til að gulltryggja Leverkusen stigin þrjú.

Leverkusen er í 6. sæti með 49 stig, fjórum stigum frá Meistaradeildarsæti.

Leipzig vann 2-1 útisigur á Werder Bremen. Antonio Nusa og Romulo gerðu mörk Leipzig sem er í 4. sæti deildarinnar með 53 stig.

Hoffenheim 1 - 2 Mainz
0-1 Phillip Tietz ('13 )
1-1 Fisnik Asllani ('23 )
1-2 Phillip Tietz ('79 )

Freiburg 2 - 3 Bayern
1-0 Johan Manzambi ('46 )
2-0 Lucas Holer ('71 )
2-1 Tom Bischof ('81 )
2-2 Tom Bischof ('90 )
2-3 Lennart Karl ('90 )

Borussia M. 2 - 2 Heidenheim
1-0 Wael Mohya ('16 )
1-1 Patrick Mainka ('26 )
1-2 Marnon Busch ('64 )
2-2 Franck Honorat ('74 )

Bayer 6 - 3 Wolfsburg
0-1 Jonas Wind ('16 )
1-1 Alejandro Grimaldo ('30 , víti)
1-2 Joakim Maehle ('31 )
1-3 Christian Eriksen ('38 , víti)
2-3 Alejandro Grimaldo ('44 )
3-3 Patrik Schick ('53 , víti)
4-3 Edmond Tapsoba ('68 )
5-3 Ibrahim Maza ('73 )
6-3 Malik Tillman ('90 )

Hamburger 1 - 1 Augsburg
0-1 Arthur Chaves ('22 )
1-1 Ransford Konigsdorffer ('60 )
Rautt spjald: Miro Muheim, Hamburger ('64)

Werder 1 - 2 RB Leipzig
0-1 Antonio Nusa ('15 )
0-2 Romulo ('52 )
1-2 Salim Musah ('90 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 30 25 4 1 109 29 +80 79
2 Dortmund 30 19 7 4 61 31 +30 64
3 RB Leipzig 30 18 5 7 59 37 +22 59
4 Stuttgart 30 17 5 8 62 42 +20 56
5 Hoffenheim 30 16 6 8 59 44 +15 54
6 Leverkusen 30 15 7 8 60 41 +19 52
7 Freiburg 30 12 7 11 44 48 -4 43
8 Frankfurt 30 11 9 10 55 57 -2 42
9 Augsburg 30 10 6 14 38 54 -16 36
10 Mainz 30 8 10 12 36 45 -9 34
11 Union Berlin 30 8 8 14 34 52 -18 32
12 Köln 30 7 10 13 44 51 -7 31
13 Gladbach 30 7 10 13 36 50 -14 31
14 Hamburger 30 7 10 13 33 48 -15 31
15 Werder 30 8 7 15 35 53 -18 31
16 St. Pauli 30 6 8 16 26 51 -25 26
17 Wolfsburg 30 6 6 18 41 66 -25 24
18 Heidenheim 30 4 7 19 33 66 -33 19
Slapp
banner
banner