Dominik Szoboszlai, miðjumaður Liverpool, segir að liðið hafi skort baráttuanda og rétta hugarfarið í 4-0 tapinu gegn Manchester City í 8-liða úrslitum enska bikarsins í dag.
Síðasti klukkutíminn hjá Liverpool var ömurlegur. Leikurinn byrjaði vel hjá þeim rauðu en eftir að Virgil van Dijk fékk á sig vítaspyrnu hrundi allt.
Man City skoraði tvö fyrir lok fyrri hálfleiks og tvö snemma í þeim síðari.
Szoboszlai segir að liðið verði að gera betur.
„Ég veit það ekki. Það er glórulaust þegar þú gerir eitthvað og færð ekkert fyrir þinn snúð. Við fengum færi en klúðruðum þeim og fáum síðan á okkur ódýra vítaspyrnu. Við töpum 4-0. Við getum ekki verið að fá á okkur svona mörg mörk. Það er ekkert meira sem ég get sagt.“
„Það er erfitt að koma hingað og vinna. Við héldum áfram í trúna þegar við lendum 1-0 undir en að fara 2-0 undir í hálfleik með því að fá á okkur mark undir lok leiks þá fara líkurnar minnkandi.“
„Þú mætir til leiks og vilt sýna að það sé hægt að koma til baka, en þá kemur þriðja markið. Eftir það var ekki möguleiki á endurkomu.
„Baráttuandinn og hugarfarið var ekki nóg. Það vantaði hjá okkur öllum. Þetta er erfiður tími en við verðum að halda hópinn. Á miðvikudag er annar möguleiki, en við verðum að troða því inn í hausinn á okkur að við viljum ekki klára tímabilið með þessum hætti.“
„Við verðum að reyna að gleyma eins miklu og við getum og það sem fyrst, og bara halda áfram að berjast. Ég segi alltaf frá því þegar við gerum það og þá vinnum við, en þegar við gerum það ekki þá töpum við. Við verðum að berjast, leggja okkur alla fram og vera þarna fyrir hvorn annan. Það vantar stundum upp á það,“ sagði Szoboszlai.


