Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   lau 04. apríl 2026 08:30
Kári Snorrason
Ronaldo sneri til baka og skoraði tvö
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk í endurkomu sinni á völlinn þegar Al Nassr vann Al Najma 5-2 í Sádi deildinni í gærkvöld. Sadio Mané skoraði sömuleiðis tvö í leiknum.

Leikurinn var hundraðasti deildarleikur Ronaldo fyrir félagið og er liðið nú með sex stiga forystu á toppi deildarinnar.

Portúgalinn hefur verið fjarri vellinum í rúman mánuð en hann hefur verið að glíma við meiðsli aftan í læri.

Ronaldo hefur nú skorað 97 mörk í fyrstu 100 deildarleikjum sínum í Sádi Arabíu.
Slapp
banner
banner