Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
   lau 04. apríl 2026 15:58
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikarinn: FH vann verðskuldaðan sigur á Þór - Adolf Daði með tvö
Adolf Daði Birgisson setti tvö gegn Þór og var nálægt þrennunni í lokin
Adolf Daði Birgisson setti tvö gegn Þór og var nálægt þrennunni í lokin
Mynd: Twitter/FHingar
Þór 2 - 4 FH
1-0 Ragnar Óli Ragnarsson ('19 )
1-1 Arnór Borg Guðjohnsen ('30 )
1-2 Adolf Daði Birgisson ('34 )
1-3 Aron Birkir Stefánsson ('67 , sjálfsmark)
1-4 Adolf Daði Birgisson ('71 )
2-4 Aron Ingi Magnússon ('90 )
Lestu um leikinn

FH-ingar eru komnir með farseðilinn í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir að hafa komið til baka og unnið 4-2 sigur á Þór í Boganum í dag.

Þórsarar þurftu aðeins nítján mínútur til að brjóta ísinn er Ragnar Óli Ragnarsson stangaði hornspyrnu Atla Sigurjónssonar í netið.

Fyrsta mark Ragnars á tímabilinu sem skoraði einmitt eitt mark á síðustu leiktíð.

FH-ingar svöruðu ellefu mínútum síðar. Arnór Borg Guðjohnsen slapp í gegn eftir langa sendingu inn fyrir, Aron Birkir Stefánsson markvörður Þórsara var í boltanum en ekki nóg til þess að stöðva skot Arnórs og staðan jöfn.

Þeir hömruðu járnið meðan það var heitt. Adolf Daði Birgisson kom FH-ingum yfir fjórum mínútum síðar eftir misskilning í vörn Þórsara. Gils Gíslason komst inn fyrir, lagði boltann til hliðar á Adolf sem skoraði.

Ágúst Eðvald Hlynsson komst nálægt því að jafna metin áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks en skot hans fór í stöngina.

FH-ingar komust í tveggja marka forystu með smá heppni á 67. mínútu er Kjartan Kári Halldórsson átti hálfgerða fyrirgjöf sem Aron Birkir missti einhvern veginn inn í markið og þá gerði Adolf Daði annað mark sitt er hann fékk bolta frá Grétari Snæ Gunnarssyni, lagði hann fyrir sig og setti boltann í netið.

Í uppbótartíma skoraði Aron Ingi Magnússon sárabótarmark fyrir Þórsara með frákasti eftir að Jökull hafði varið skalla Ragnars Óla út í teiginn.

Adolf Daði var hársbreidd frá því að fullkomna þrennuna undir lok leiks en boltinn í þverslá. Þetta var það síðasta markverða sem gerðist í þessum leik og eru það FH-ingar sem eru komnir áfram í 16-liða úrslit.
Slapp
banner