Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
   lau 04. apríl 2026 15:17
Brynjar Ingi Erluson
Slot vonsvikinn - „Eina góða var að við fengum ekki á okkur fleiri mörk“
Arne Slot
Arne Slot
Mynd: EPA
Mynd: EPA
„Það eru mikil vonbrigði að vera úr leik í enska bikarnum, ekki bara að vera úr leik heldur hvernig leikurinn endaði. Þetta eru enn ein vonbrigðin hjá okkur,“ sagði Arne Slot, stjóri Liverpool, eftir 4-0 niðurlæginguna gegn Manchester City í 8-liða úrslitum enska bikarsins á Etihad í dag.

Liverpool er úr leik í enska bikarnum. Frammistaðan var nokkuð góð svona stærstan hluta fyrri hálfleiks en leikmenn Liverpool gáfu árar í bát eftir að hafa fengið á sig vítaspyrnu.

Man City skoraði tvö á nokkrum mínútum undir lok fyrri hálfleiks og svo tvö snemma í þeim síðari.

„Það sem hefur vantað stærstan hluta tímabilsins er að nýta færin sem við fáum. Mér fannst leikurinn vera jafn fram að vítaspyrnunni sem þeir skoruðu úr. Síðast þegar við spiluðum hér þá kom einmitt líka mark stuttu fyrir lok fyrri hálfleiks og svo aftur í dag.“

„Við fáum vítaspyrnum og fáum þar tækifæri en það segir mér ekki neitt. Það sem ég vil fá frá liðinu er það sem við sáum á fyrstu 35 mínútunum, en varnarlega eigum við að gera betur en það sem við gerðum næstu tuttugu mínúturnar á eftir. Það er ekki notalegt að fara 2-0 undir í hálfleik og bætir ekkert stemninguna miðað við tímabilið sem við höfum átt. Það var erfitt að taka því og í raun það eina góða var að við fengum ekki fleiri mörk á okkur.“

„Ég myndi ekki horfa bara á einn leikmann heldur allt liðið og það súmmerar svona ágætlega upp allt tímabilið eða stóran hluta þess. Ég held að þetta sé önnur vítaspyrnan sem hann klúðrar og svo hefur Dominik Szoboszlai einnig klúðrað spyrnu, þannig við erum ekki bara að klúðra dauðafærum heldur líka nokkrum vítaspyrnum.

„Ef þú vilt eiga góðan leik á miðvikudag þá hjálpar það ekki beint að tapa 4-0, en stærra tap hefði verið enn stærra vandamál fyrir okkur.“

„Ég reyndi að koma okkur aftur inn í leikinn og minnka muninn í 4-1 eða 4-2, en á sama tíma að reyna sjá til þess að við myndum ekki fá fleiri mörk á okkur,“
sagði Slot.

Næsti leikur Liverpool er gegn Evrópumeisturum Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Það er ótrúlega stórt og mikilvægt því það er ekki á hverju tímabili sem þú spilar í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Við erum spenntir fyrir því að spila gegn sterku liði. Við viljum komast í Meistaradeildina á næsta tímabili og enn margt til að keppast um.“

„Það hafa komið mörg bakslög og vonbrigði en það er hluti af því að vera fótboltamaður og manneskja. Þú þarft að standa beinn í baki þegar hlutirnir eru ekki jákvæðir og núna snýst þetta bara um það. Leikmennirnir hafa sýnt svo mikil gæði í gegnum árin og núna er tækifæri til að sýna það aftur gegn PSG,“
sagði Slot.
Slapp
banner
banner