Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   lau 04. apríl 2026 10:54
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Man City og Liverpool: Varamarkmennirnir á milli stanganna - Enginn Isak
Pep Guardiola og Arne Slot hafa tilkynnt byrjunarlið sín fyrir stórleik dagsins
Pep Guardiola og Arne Slot hafa tilkynnt byrjunarlið sín fyrir stórleik dagsins
Mynd: EPA
Manchester City og Liverpool mætast í erkifjendaslag í 8-liða úrslitum enska bikarsins á Etihad klukkan 11:45 í dag.

Leikir þessara liða hafa verið hin mesta skemmtun síðustu ár og sá sérstaklega þegar Jürgen Klopp og Pep Guardiola áttust við á hliðarlínunni.

Á þessu tímabili hafa liðin mæst tvisfar sinni en Man City vann óvæntan 2-1 sigur á Anfield í febrúar sem var sá fyrsti fyrir framan áhorfendur í 23 ár og þá unnu City-menn 3-0 sigur á Etihad í nóvember.

Bæði lið tefla fram varamarkvörðum sínum. James Trafford er í marki Man City og þá er Giorgi Mamardashvili á milli stanganna hjá Liverpool, en Alisson er frá vegna meiðsla.

Alexander Isak er ekki í hópnum hjá Liverpool, en hann hefur aðeins tekið tvær æfingar með liðinu síðan hann steig upp úr meiðslum. Jeremie Frimpong er hins vegar á bekknum hjá Liverpool.

Mohamed Salah byrjar hjá Liverpool ásamt Hugo Ekitike og Florian Wirtz.

Man City: Trafford; Nunes, Khusanov, Guéhi, O’Reilly; Rodri, Bernardo, Semenyo; Cherki, Doku, Haaland.

Liverpool: Mamardashvili; Gomez, Van Dijk, Konate, Kerkez; Wirtz, Szoboszlai, Gravenberch; Jones, Ekitike, Salah.




Slapp
banner
banner