Manchester-liðin berjast um Elliot Anderson, Bruno Fernandes gæti farið til Frakklands eða Þýskalands og þá ætlar Liverpool að endurbyggja hópinn í sumar. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Manchester City og Manchester United vilja ganga frá samkomulagi við Nottingham Forest um Elliot Anderson (23) snemma í sumar og gæti góð frammistaða á HM ýtt verðmiðanum yfir 100 milljónir punda. (Sun)
Framtíð Bruno Fernandes (31), fyrirliða Man Utd, er í óvissu ef félagið fær risatilboð í portúgalska landsliðsmanninn frá félögum á borð við Paris Saint-Germain og Bayern München. (Caught Offside)
Hins vegar vill Man Utd halda Fernandes þrátt fyrir að hann sé með 57 milljóna punda klásúluverð í samningnum. (Express)
Liverpool ætlar að gera margar breytingar á hópnum sem hefur spilað langt undir getu á tímabilinu og eru stjórnarmenn félagsins reiðubúnir að gera aðra endurbyggingu á hópnum. (Star)
Félagið gæti þá fengið samkeppni frá ensku úrvalsdeildarfélögunum Man Utd og Newcastle um franska landsliðsmanninn Khephren Thuram (25) í sumar. Hann er á mála hjá Juventus. (Mirror)
Karim Coulibaly (18), leikmaður Werder Bremen og U21 árs landsliðs Þýskalands, gæti yfirgefið félagið í sumar, en Newcastle er eitt af fimm félögum sem vilja fá hann. (Bild)
Marcos Senesi (28), varnarmaður Bournemouth og argentínska landsliðsins, vill fá tilboð frá Barcelona í sumar, en Liverpool, Chelsea, Aston Villa, Everton, Tottenham, Newcastle og Sunderland eru einnig áhugasöm. (Teamtalk)
Moises Caicedo (24), miðjumaður Chelsea, segir skuldbundinn Chelsea, en vill ekki útiloka það að fara til Real Madrid í framtíðinni. (AS).
Bart Verbruggen (23), markvörður Brighton og hollenska landsliðsins, gæti yfirgefið félagið í sumar en hann er á óskalista Bayern, Tottenham og Newcastle. (Teamtalk)
Kólumbíski varnarmaðurinn Jhon Lucumi (27) mun líklega yfirgefa Bologna í sumar. Sunderland hefur sýnt honum mikinn áhuga á síðustu mánuðum. (ForzaRoma)


