Lærisveinar Srdjan Tufegdzic í Värnamo fengu svakalegan 6-0 skell gegn Norrköping í 1. umferð sænsku B-deildarinnar í dag.
Fyrir tímabilið var Värnamo og Norrköping spáð tveimur efstu sætunum í deildinni en það var himinn og haf á milli liðanna í dag.
Logi Hrafn Róbertsson byrjaði hjá Värnamo sem var fjórum mörkum undir í hálfleik.
Sænski framherjinn Tim Prica fullkomnaði þrennu sína í síðari hálfleik og þá skoraði Englendingurinn Ryan Nelson sjötta og síðasta mark Norrköping tíu mínútum fyrir leikslok.
Andri Fannar Baldursson var í byrjunarliði Kasimpasa sem vann 2-0 sigur á Kayserispor í tyrknesku úrvalsdeildinni. Kasimpasa er í 13. sæti með 27 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti eftir 28 umferðir.


