Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   lau 04. apríl 2026 16:47
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Real Madrid tapaði fyrir fallbaráttuliði
Real Madrid átti ekki góðan leik á Majorka
Real Madrid átti ekki góðan leik á Majorka
Mynd: EPA
Mallorca 2 - 1 Real Madrid
1-0 Manu Morlanes ('41 )
1-1 Eder Militao ('88 )
2-1 Vedat Muriqi ('90 )

Spænska stórveldið Real Madrid laut í lægra haldi fyrir Real Mallorca, 2-1, á Majorka í La Liga í dag.

Madrídingar höfðu unnið fimm í röð í öllum keppnum fram að þessum leik á meðan Mallorca hafði unnið aðeins einn af síðustu sjö deildarleikjum sínum.

Arda Güler fékk besta færi Madrídinga í fyrri hálfleiknum er hann fékk boltann vinstra megin í teignum en skot hans var beint á Leo Roman í markinu.

Manu Morlanes refsaði Güler fyrir þetta klúður. Pablo Maffeo, einn versti óvinur Madrídinga og Vinicius Jr, kom með fyrirgjöf frá hægri inn á teiginn. Morlanes kom með seinni bylgjunni, tók á móti boltanum og stýrði honum örugglega í netið.

Agalegur varnarleikur hjá Madrídingum að lesa ekki í hlaupið hans.

Þeir komu til baka á 88. mínútu er Eder Militao þrumuskallaði hornspyrnu Trent Alexander-Arnold efst í hægra hornið en þeir fengu rennblauta tusku í andlitið í uppbótartíma.

Þar leit vörn Real ekkert sérstaklega vel út heldur. Roman sparkaði boltanum langt fram og unnu Mallorca einvígin í fremstu víglínu, boltanum komið inn á Muriqi sem setti boltann í þaknetið.

Nítjánda deildarmark Kósóvó-mannsins á tímabilinu og eitt það mikilvægasta en það kom Mallorca upp úr fallsæti og í 17. sæti með 31 stig á meðan Madrídingar eru við það að stimpla sig úr titilbaráttunni en liðið er með 69 stig í öðru sæti, fjórum stigum á eftir Barcelona sem á leik til góða.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 32 27 1 4 85 30 +55 82
2 Real Madrid 33 23 5 5 68 31 +37 74
3 Villarreal 32 19 5 8 57 37 +20 62
4 Atletico Madrid 32 17 6 9 53 35 +18 57
5 Betis 33 12 14 7 49 41 +8 50
6 Celta 32 11 11 10 44 41 +3 44
7 Getafe 32 13 5 14 28 32 -4 44
8 Real Sociedad 32 11 9 12 49 49 0 42
9 Athletic 32 12 5 15 34 45 -11 41
10 Osasuna 32 10 9 13 37 39 -2 39
11 Vallecano 32 9 11 12 30 38 -8 38
12 Espanyol 32 10 8 14 37 49 -12 38
13 Girona 32 9 11 12 35 48 -13 38
14 Valencia 32 9 9 14 35 47 -12 36
15 Elche 32 8 11 13 42 49 -7 35
16 Mallorca 32 9 8 15 40 49 -9 35
17 Sevilla 32 9 7 16 39 53 -14 34
18 Alaves 32 8 9 15 36 48 -12 33
19 Levante 32 8 8 16 37 50 -13 32
20 Oviedo 32 6 10 16 25 49 -24 28
Slapp
banner
banner