Ousmane Dembele, besti fótboltamaður heims, var samur við sig í 3-1 sigri Paris Saint-Germain á Toulouse í frönsku deildinni í gær og skoraði þar tvö mörk er liðið færði sig nær titlinum.
Dembele, sem vann gullboltann eftirsótta á síðasta ári, skoraði eitt stórbrotið mark í leiknum.
Það gerði hann snemma leiks með viðstöðulausu skoti fyrir utan teig sem sveif í samskeytin hægra megin.
Frakkinn segir þetta vera eitt flottasta mark ferilsins, en var þó hógvær í viðtali eftir leik.
„Þetta var erfitt. Ef ég tæki þetta skot tíu sinnum þá myndi ég bara skora einu sinni. Boltinn kom skoppandi til mín þannig ég ákvað að láta reyna á þetta. Það gekk upp. Þetta var fallegt mark og held að þetta sé topp þrjú flottustu mörk sem ég hef skorað, en uppáhaldsmarkið mitt er það sem ég gerði gegn Lille (í janúar),“ sagði Dembele sem hefur komið að fimmtán mörkum í sautján deildarleikjum á leiktíðinni.
Sjáðu markið hjá Dembele hér

