Mohamed Salah var lang slakasti maður vallarins er Liverpool datt úr leik í 8-liða úrslitum enska bikarsins í 4-0 tapi gegn Manchester City á Etihad-leikvanginum í dag.
Þetta er versta tímabil Salah síðan hann kom til Liverpool árið 2017, en aldurinn er farinn að segja til sín.
Hann virðist hafa áttað sig á því en hann hefur tilkynnt að hann sé á förum í sumar.
Salah byrjaði hjá Liverpool í dag og fékk þeirra bestu færi, en fór illa með þau. Í síðari hálfleiknum fékk hann tækifæri til að skora er Hugo Ekitike fiskaði vítaspyrnu en James Trafford varði frá honum.
Sky Sports gefur Salah 4 í einkunn og valdi hann slakasta mann vallarins á meðan Erling Haaland, sem gerði þrennu fyrir Man City, var valinn bestur með 9. Rayan Cherki og Nico O'Reilly fá sömu einkunn.
Man City: Trafford (8), Nunes (6), Khusanov (7), Guehi (7), O'Reilly (9), Rodri (7), Bernardo (7), Semenyo (8), Cherki (9), Doku (7), Haaland (9).
Varamenn: Gonzalez (6), Savinho (6), Reijnders (6), Foden (6), Marmoush (6).
Liverpool: Mamardashvili (6), Gomez (5), Konate (5), Van Dijk (5), Kerkez (6), Gravenberch (6), Jones (6), Szoboszlai (6), Salah (4), Ekitike (6), Wirtz (6).
Varamenn: : Frimpong (6), Mac Allister (5), Gakpo (6), Ngumoha (6), Chiesa (6).


