Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   fös 10. júlí 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
Henry kraup á hné í 8 mínútur og 46 sekúndur
Mynd: Getty Images
Thierry Henry, þjálfari Montreal Impach í MLS-deildinni í Bandaríkjunum, kraup á hné fyrstu 8 mínúturnar og 46 sekúndurnar í leik liðsins gegn New England Revolution í gærkvöldi.

Henry vildi með þessu sína stuðning í baráttunni gegn kynþáttafordómum.

Henry ákvað að krjúpa á hné í átta mínútur og 46 sekúndur þar sem það er jafnlangur tími og lögreglumaður var ofan á hálsi George Floyd áður en hann lést í maí síðastliðnum.

Í kjölfarið fór af stað byltingin "Black Lives Matter" en margir íþróttamenn hafa sýnt stuðning í verki undanfarnar vikur.

MLS deildin hófst aftur í vikunni eftir langt hlé vegna kórónaveiru faraldursins.

Athugasemdir
banner
banner