Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
   mið 11. febrúar 2026 19:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Sunderland og Liverpool: Endo í hægri bakverði
Wataru Endo tæklar.
Wataru Endo tæklar.
Mynd: EPA
Síðasti leikur kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni er leikur Sunderland og Liverpool á Leikvangi ljóssins.

Granit Xhaka er enn frá hjá Sunderland vegna meiðsla og það eru góðar fréttir fyrir Liverpool enda hefur Xhaka verið einn besti leikmaður deildarinnar á tímabilinu.

Dominik Szoboszlai er í leikbanni hjá Liverpool eftir að hafa fengið rauða spjaldið gegn Manchester City. Arne Slot, stjóri Liverpool, ákveður að setja miðjumanninn Wataru Endo í hægri bakvörðinn í staðinn. Calvin Ramsay og Joe Gomez eru báðir á bekknum og þá eru Connor Bradley og Jeremie Frimpong báðir meiddir.

Bæði Chelsea og Manchester United misstu af stigum í gærkvöldi og það gerir þennan leik enn mikilvægari fyrir Liverpool í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Byrjunarlið Sunderland: Roefs, Mukiele, Ballard, Alderete, Reinaldo, Sadiki, Diarra, Angulo, Hume, Le Fee, Brobbey.
(Varamenn: Ellborg, Cirkin, O'Nien, Geertruida, Rigg, Mundle, Isidor, Mayenda, Talbi)

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Endo, Van Dijk, Konate, Robertson, Mac Allister, Gravenberch, Wirtz, Gakpo, Salah, Ektike.
(Varamenn: Mamardashvili, Gomez, Kerkez, Chiesa, Jones, Nyoni, Ramsay, Morrison, Ngumoah)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 25 17 5 3 49 17 +32 56
2 Man City 25 15 5 5 51 24 +27 50
3 Aston Villa 25 14 5 6 36 27 +9 47
4 Man Utd 26 12 9 5 47 37 +10 45
5 Chelsea 26 12 8 6 47 30 +17 44
6 Liverpool 25 11 6 8 40 35 +5 39
7 Brentford 25 12 3 10 39 34 +5 39
8 Everton 26 10 7 9 29 30 -1 37
9 Bournemouth 26 9 10 7 43 45 -2 37
10 Newcastle 26 10 6 10 37 37 0 36
11 Sunderland 25 9 9 7 27 29 -2 36
12 Fulham 25 10 4 11 35 37 -2 34
13 Crystal Palace 25 8 8 9 26 29 -3 32
14 Brighton 25 7 10 8 34 33 +1 31
15 Leeds 26 7 9 10 36 45 -9 30
16 Tottenham 26 7 8 11 36 37 -1 29
17 Nott. Forest 25 7 5 13 25 38 -13 26
18 West Ham 26 6 6 14 32 49 -17 24
19 Burnley 25 3 6 16 25 49 -24 15
20 Wolves 25 1 5 19 16 48 -32 8
Athugasemdir
banner
banner