Þrátt fyrir frábæra byrjun sem bráðabirgðastjóri Manchester United er Michael Carrick ekki líklegastur til að taka við liðinu til frambúðar.
Carrick hefur stýrt United í fimm leikjum og hafa fjórir þeirra endað með sigri. Eini leikurinn sem gerði það ekki var jafnteflisleikur gegn West Ham í gær.
Carrick hefur stýrt United í fimm leikjum og hafa fjórir þeirra endað með sigri. Eini leikurinn sem gerði það ekki var jafnteflisleikur gegn West Ham í gær.
Stuðningsmenn Man Utd hafa flestir verið hrifnir af því sem hefur sést frá liðinu eftir að Carrick tók við.
En Sky Sports greinir frá því í dag að þó þeir sem stjórna hjá United séu ánægðir með gengi liðsins að undanförnu, þá sé Carrick ekki líklegastur til að taka við til frambúðar.
United er frekar að líta á reynslumeiri stjóra eins og staðan er núna, en það verður fróðlegt að sjá hver stýrir Man Utd á næsta tímabili.
Athugasemdir



