Harry Redknapp segist tilbúinn að taka við Tottenham út tímabilið ef honum býðst það.
Thomas Frank var í morgun rekinn úr starfinu og hefur Redknapp lýst því yfir að hann sé tilbúinn ef símtalið kemur.
Thomas Frank var í morgun rekinn úr starfinu og hefur Redknapp lýst því yfir að hann sé tilbúinn ef símtalið kemur.
„Er ég tilbúinn í það? Auðvitað, án nokkurs vafa," sagði Redknapp við Sky Sports.
„En ég bý ekki í draumaheimi. Það er mjög ólíklegt að ég fái starfið, en ég gæti staðið mig vel."
Redknapp, sem er 78 ára gamall, stýrði Tottenham frá 2008 til 2012. Hann var síðast stjóri Birmingham árið 2017 en hefur ekkert þjálfað síðan þá.
Athugasemdir




