Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ferdinand þarf stundum að nota hjólastól
Rio Ferdinand.
Rio Ferdinand.
Mynd: EPA
Manchester United goðsögnin Rio Ferdinand segist stundum þurfa að nota hjólastól vegna meiðsla sem hann varð fyrir á meðan hann spilaði fótbolta.

Ferdinand var um árabil einn besti miðvörður fótboltaheimsins. Hann er í dag talinn einn besti miðvörður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Hinn 47 ára gamli Ferdinand segir leikmannaferilinn hafa tekið stóran toll af líkamlegri heilsu sinni. Hann lýsti því nýverið í samtali við Men's Health UK.

„Ég var að taka verkjatöflur og sprautur í sex ár til að spila. Það hefur haft mikil áhrif á mig. Ég á daga þar sem ég mjög slæmur í bakinu og þarf að leggjast inn á spítala eða vera í hjólastól í nokkra daga," sagði Ferdinand.

Ferdinand, sem starfar í dag við að gera fótboltaumræðumyndbönd á Youtube, segist vera að leggja aukna áherslu á það núna að bæta líkamlega heilsu sína með sjúkraþjálfara.
Athugasemdir
banner
banner