Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
   mið 11. febrúar 2026 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gæti skapað vandamál fyrir Arsenal
Ethan Nwaneri.
Ethan Nwaneri.
Mynd: EPA
Brottrekstur Roberto De Zerbi frá Marseille í morgun gæti skapað vandamál fyrir Arsenal.

Í síðasta mánuði samþykkti Arsenal að lána hinn efnilega Ethan Nwaneri til Marseille. Nwaneri hafði þá átt í veseni með að koma sér inn í liðið hjá Arsenal.

Nwaneri er gríðarlega efnilegur en hann er bara 18 ára gamall. Aðalástæðan fyrir því að hann var lánaður til Marseille var De Zerbi og hugrekki hans til að nota unga leikmenn. Mikel Arteta, stjóri Arsenal, ræddi við De Zerbi áður en ákvörðun var tekin um að lána Nwaneri til Frakklands.

Nwaneri skoraði í fyrsta leik sínum undir stjórn De Zerbi en honum hefur gengið brösulega í síðustu leikjum.

Arsenal taldi Marseille rétta skrefið fyrir Nwaneri út af De Zerbi en núna er óvissa hvernig næstu mánuðir fara hjá honum hjá nýjum þjálfara.
Athugasemdir
banner