Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 08:35
Elvar Geir Magnússon
Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd
Powerade
Eli Junior Kroupi til Liverpool?
Eli Junior Kroupi til Liverpool?
Mynd: EPA
Gibbs-White til Aston Villa?
Gibbs-White til Aston Villa?
Mynd: EPA
Ungur leikmaður Bournemouth er orðaður við Liverpool, Sádi-Arabía heldur áfram að girnast Salah og Aston Villa hefur áhuga á leikmanni Nottingham Forest. Þetta er meðal þess sem er í miðvikudagsslúðrinu.

Mörg félög hafa áhuga á franska framherjanum Eli Junior Kroupi (19) hjá Bournemouth. Þar er Liverpool í fararbroddi og gæti keypt hann í sumar. (Caught Offside)

Al-Ittihad í Sádi-Arabíu vill fá egypska framherjann Mohamed Salah (33) frá Liverpool í sumar og leikmaðurinn er opinn fyrir skiptunum. (Foot Mercato)

Það eru auknar líkur á því að varnarmaðurinn Harry Maguire (32) skrifi undir framlengingu hjá Manchester United. (Mai)

Morgan Gibbs-White (26), miðjumaður Nottingham Forest, gæti fært sig um set í sumar en Aston Villa telur að hann smellpassi í sitt lið. (TeamTalk)

Real Madrid vill fá miðvörð og er með Cristian Romero (27), fyrirliða Tottenham, á blaði. Argentínumaðurinn hefur einnig verið orðaður við Barcelona og Atletico Madrid. (Mundo Deportivo)

Bayern München hefur hafið viðræður við enska framherjann Harry Kane (32) um nýjan samning og telur að hann muni skrifa undir. (Sky Sports)

Leeds undirbýr 30 milljóna punda tilboð í enska markvörðinn James Trafford (23) hjá Manchester City í sumar. (TeamTalk)

Brighton samþykkti tilboð í Lewis Dunk (34) frá Nottingham Forest í janúar en enski varnarmaðurinn vildi ekki fara. (Sky Sports)

Crystal Palace gæti lækkað 30 milljóna punda verðmiðann á franska sóknarmanninum Jean-Philippe Mateta (28) í sumar en Manchester United er meðal félaga sem hafa áhuga. (Football Insider)

Manchestrer United íhugar að gera tilboð í varnarmanninn Abubacarr Sedi Kinteh (19), Gambíumann hjá Tromsö í Noregi. (Mail)

Juventus og önnur ítölsk félög ættu í vandræðum með að ganga að launakröfum ítalska miðjumannsins Sandro Tonali (25) hjá Newcastle. Manchester United og Arsenal hafa áhuga á honum. (The Athletic)
Athugasemdir
banner
banner