Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 22:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikarinn: KV með endurkomu á Akranesi
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Kári 2 - 3 KV
1-0 Sigurjón Logi Bergþórsson ('13)
2-0 Sigurjón Logi Bergþórsson ('45)
2-1 Eiður Snorri Bjarnason ('60)
2-2 Oddur Ingi Bjarnason ('71)
2-3 Gunnar Magnús Gunnarsson ('74)

KV vann endurkomusigur gegn Kára í Akraneshöllinni í kvöld. Liðin áttust þá við í riðli 1 í B-deild Lengjubikars karla.

Káramenn byrjuðu leikinn talsvert betur og var Sigurjón Logi Bergþórsson í stuði í fyrri hálfleiknum. Hann skoraði tvisvar og var staðan 2-0 þegar liðin gengu til búningsklefa.

Í seinni hálfleiknum snerist taflið hins vegar við og KV kom til baka. Eiður Snorri Bjarnason minnkaði muninn og Oddur Ingi Bjarnason jafnaði. Gunnar Magnús Gunnarsson skoraði svo það sem reyndist vera sigurmarkið.

Þetta var fyrsti leikurinn í þessum riðli í B-deild Lengjubikarsins, KV með þrjú stig og Kári án stiga.
Athugasemdir
banner