Jose Mourinho gæti átt von á stóru starfstilboði í sumar. Mourinho er í dag stjóri Benfica en það er spurning hvort að hann muni breyta til í sumar.
Mourinho er einn sigursælasti stjóri fótboltasögunnar og hefur unnið fjöldamarga titla með mörgum af stærstu félögunum.
En það er eitt sem hann á eftir að gera og það er að þjálfa landslið.
ESPN er með heimildarmenn í Portúgal sem halda því fram að portúgalska fótboltasambandið sé að undirbúa það að gera Mourinho stórt tilboð í sumar eftir HM.
Samningur Roberto Martinez rennur út eftir HM og það er ólíklegt á þessum tímapunkti að hann fái framlengingu.
Ef Mourinho yfirgefur Benfica er Rúben Amorim, fyrrum stjóri Manchester United, sagður líklegur til að taka þar við.
Athugasemdir



