Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 22:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Risasigur hjá Glódísi - Eyþór hjálpaði Tómasi
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði.
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eyþór Martin Björgólfsson.
Eyþór Martin Björgólfsson.
Mynd: Motherwell
Viktor Bjarki Daðason.
Viktor Bjarki Daðason.
Mynd: EPA
Það voru nokkrir Íslendingar í eldlínunni víða um Evrópu í kvöld. Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði Íslands, spilaði til að mynda allan tímann þegar Bayern München rústaði Jena í þýsku úrvalsdeildinni, 0-6.

Glódís er fyrirliði Bayern sem er að valta yfir þýsku úrvalsdeildina, eru tólf stigum á undan Wolfsburg sem er í öðru sæti deildarinnar.

Guðrún Arnardóttir spilaði þá með Hammarby í 0-1 útisigri gegn Sporting í Evrópubikarnum. Þetta var fyrri leikur liðanna en Guðrún gekk nýverið í raðir Hammarby eftir stutta dvöl hjá Braga í Portúgal.

Eyþór hjálpaði Tómasi
Í Skotlandi gerði Motherwell 1-1 jafntefli við Rangers, frábær úrslit þar hjá Eyþóri Martin Björgólfssyni og félögum. Eyþór kom inn af bekknum og lagði upp Motherwell í lokin en þeir voru einum færri þegar þeir jöfnuðu.

Eyþór er fæddur og uppalinn í Jessheim í Noregi, en faðir hans er íslenskur. Hann er stór og stæðilegur eða um 1,93 sm á hæð og raðaði inn mörkum með Umeå í Svíþjóð á síðustu leiktíð. Það varð til þess að Motherwell samdi við hann.

Rangers er í öðru sæti skosku úrvalsdeildarinnar, núna fimm stigum á eftir Hearts. Það má því með sanni segja að Eyþór hafi hjálpaði Tómasi Bent Magnússyni í kvöld en Tómas er leikmaður Hearts sem er að berjast fyrir því vinna skoska meistaratitilinn.

Viktor vann en illa gekk á Ítalíu, Hollandi og í Grikklandi
Það gekk lítið upp hjá Íslendingunum í Grikklandi í kvöld. Hörður Björgvin Magnússon lék með Levadiakos í tapi gegn OFI Crete. Hörður og félagar voru einum fleiri lengi vel en nýttu ekki liðsmuninn. Svo spilaði Sverrir Ingi Ingason í tapi Panathinaikos gegn PAOK í sömu keppni.

Það er sömu sögu að segja frá Hollandi og Ítalíu. Í Hollandi töpuðu Íslendingaliðin Go Ahead Eagles og NEC Nijmegen. Alfons Sampsted byrjaði hjá Go Ahead Eagles í tapi gegn Heerenveen og Stefán Ingi Sigurðarson kom inn af bekknum. Þá kom Willum Þór Willumsson inn af bekknum í tapi NEC gegn Utrecht.

Kristófer Jónsson spilaði allan leikinn í 4-0 tapi Triestina gegn Renate. Hans menn eru á botni síns riðils í C-deildinni á Ítalíu.

Svo að lokum þá vann FC Kaupmannahöfn 2-1 sigur á Viborg í danska bikarnum. Þetta var fyrri leikur liðanna í undanúrslitum en Viktor Bjarki Daðason byrjaði og spilaði allan tímann fyrir FCK. Ísak Andri Sigurgeirsson kom inn af bekknum hjá Viborg í seinni hálfleik og Rúnar Alex Rúnarsson var ónotaður varamaður hjá FCK.
Athugasemdir
banner
banner
banner