Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
   mið 11. febrúar 2026 20:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þá og nú: Milner búinn að jafna metið
Duracell
James Milner.
James Milner.
Mynd: EPA
James Milner hefur núna jafnað met Gareth Barry yfir flesta leiki spilaða í ensku úrvalsdeildinni. Milner kom inn á sem varamaður núna áðan í leik Brighton gegn Aston Villa og jafnaði þá metið.

Hinn 40 ára gamli Milner hefur átt magnaðan feril sem spannar yfir tvo áratugi, sex félög í efstu deild, 652 úrvalsdeildarleiki, 61 landsleik fyrir England, tvo Englandsmeistaratitla, tvo FA-bikara og einn Meistaradeildarsigur.

Milner hóf sinn feril hjá uppeldisfélaginu Leeds og hefur einnig leikið fyrir Newcastle, Aston Villa, Manchester City, Liverpool og Brighton í efstu deild.

Þetta er magnað afrek en Milner hefur núna mikinn tíma til að bæta þetta met. Fyrir afrek sitt fær Milner hina eftirsóttu Duracell viðurkenningu frá Fótbolti.net.

Hér fyrir neðan má sjá skemmtilega mynd frá FourFourTwo frá því Milner var að hefja feril sinn og svo núna í dag.


Athugasemdir
banner
banner