Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 21:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýski bikarinn: Stórveldið tryggði sér síðasta farseðilinn
Luis Diaz og Kane skoruðu mörkin.
Luis Diaz og Kane skoruðu mörkin.
Mynd: EPA
Bayern 2 - 0 RB Leipzig
1-0 Harry Kane ('64 , víti)
2-0 Luis Diaz ('67 )

Bayern München varð í kvöld síðasta liðið inn í undanúrslitin í þýsku bikarkeppninni þetta tímabilið.

Bayern lenti í vandræðum í fyrri hálfleik og skoraði Leipzig mark snemma leiks sem var dæmt af vegna rangstöðu. Staðan var markalaus þegar liðin gengu til búningsklefa.

Í seinni hálfleiknum reyndust heimamenn sterkari og þeir komust yfir þegar Harry Kane skoraði úr vítaspyrnu á 64. mínútu. Stuttu síðar bætti Luis Diaz svo við marki.

Leipzig hafði engin svör eftir það og sigur Bayern staðreynd. Bayern fer í undanúrslitin með Freiburg, Stuttgart og Bayer Leverkusen.
Athugasemdir
banner
banner