Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tottenham sagt hafa sett saman sjö manna lista
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: EPA
Gareth Southgate.
Gareth Southgate.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tottenham er sagt hafa sett saman sjö manna lista yfir mögulega stjóra sem gætu tekið við liðinu eftir að Thomas Frank var rekinn fyrr í dag.

TEAMTalk birti listann á vefsíðu sinni í dag en samkvæmt síðunni er Mauricio Pochettino enn mjög vel liðinn hjá félaginu eftir að hafa stýrt liðinu við góðan orðstír frá 2014 til 2019. Stuðningsmenn Tottenham hafa sungið nafn hans á síðustu leikjum.

Roberto De Zerbi, sem lét af störfum hjá Marseille í morgun, hefur verið orðaður við Tottenham og hann er líka inn í myndinni. Hann ætlar þó að hlaða batteríin til sumars.

Andoni Iraola og Oliver Glasner eru líka á listanum og þar eru sömuleiðis tvö stór nöfn, Thomas Tuchel og Julian Nagelsmann. Pochettino, Tuchel og Nagelsmann munu í sumar allir stýra landsliðum á HM - Pochettino er með Bandaríkin, Tuchel með England og Nagelsmann með Þýskaland.

Sjöunda nafnið á listanum er þá Gareth Southgate, fyrrum landsliðsþjálfari Englands. Hann á aðdáendur hjá Tottenham og hefur verið rætt um hann innanbúðar.

Tottenham er í 16. sæti, aðeins fimm stigum frá fallsvæðinu. Liðið er án sigurs í síðustu átta deildarleikjum og hefur aðeins unnið tvo af síðustu sautjan deildarleikjum.
Athugasemdir
banner
banner