banner
   mið 11. september 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo nýtur augnabliksins - Bætti met Keane í gær
Cristiano Ronaldo skoraði fjögur í gær
Cristiano Ronaldo skoraði fjögur í gær
Mynd: EPA
Portúgalska stjarnan Cristiano Ronaldo skoraði fjögur mörk í 5-1 sigri á Lithaén í gær en hann bætti þar met Robbie Keane.

Þessi 34 ára gamli sóknarmaður er kominn með 25 mörk í undankeppni Evrópumótsins á ferlinum en enginn leikmaður hefur skorað jafn mörg mörk í undankeppninni.

Robbie Keane, fyrrum framherji írska landsliðsins, átti metið en hann skoraði 23 mörk í undankeppnum Evrópumótsins á landsliðsferlinum.

Ekki nóg með það þá hefur Ronaldo skorað gegn 40 þjóðum en hann var ánægður með frammistöðuna í gær.

„Ég er ánægður og er að njóta augnabliksins. Það er ekki af því ég er að skora mikið af mörkum heldur af því við höfum náð svo mögnuðum árangri síðustu ár," sagði Ronaldo.


Athugasemdir
banner
banner