Darwin Nunez, fyrrum framherji Liverpool, hefur verið tekinn úr leikmannahópi Al Hilal fyrir seinni hluta tímabilsins í Sádi-arabísku deildinni.
Karim Benzema var fenginn til félagsins í glugganum og þegar hann var skráður þurfti að taka annan leikmann úr hópnum og það var Nunez.
Miðvörðurinn Pablo Marí er ekki heldur í hópnum hjá Al Hilal fyrir seinni hluta tímabilsins. Það er hámark í deildinni yfir fjölda erlendra leikmanna í hópum liðanna.

Þeir mega hins vegar spila í Meistaradeild Asíu með liðinu. Al Hilal kepyti úrúgvæska framherjann á 53 milljónir evra frá Liverpool síðasta sumar.
Þetta minnir á endalok Roberto Firimino en hann var tekinn úr leikmannahópi Al-Ahli á sama tíma í fyrra. Firmino fór svo til Al-Sadd í Katar síðasta sumar.
Nunez er orðaður við River Plate í Argentínu.
Athugasemdir