Yfirmaður ICE, tolla- og innflytjendaeftirlits Bandaríkjanna, segir að stofnunin muni gegna lykilhlutverki í öryggisgæslu á HM sem fram fer í sumar.
Umfang og störf ICE hafa aukist mikið í forsetatíð Donald Trump en fjölmenn mótmæli hafa verið eftir að fulltrúar ICE skutu tvo bandaríska ríkisborgara til bana í Minneapolis.
Umfang og störf ICE hafa aukist mikið í forsetatíð Donald Trump en fjölmenn mótmæli hafa verið eftir að fulltrúar ICE skutu tvo bandaríska ríkisborgara til bana í Minneapolis.
Todd Lyons, yfirmaður ICE, svaraði fyrirspurn frá þingkonunni Nellie Pou sem er fulltrúi New Jersey þar sem úrslitaleikur HM fer fram. Pou sagði að traust gesta væri að hrynja og setja stöðu mótsins í hættu.
Lyons svaraði og sagði ICE staðráðið í að tryggja öryggi í þessu verkefni, bæði fyrir þátttakendur og gesti.
Þá sagði Pou: „Gerir þú þér grein fyrir því að ef stuðningsmenn óttast að þeir verði ranglega fangelsaðir, ranglega teknir til hliðar, þá mun það skaða allt mótið?“
Lyons svaraði: „Já frú, og ICE leggur áherslu á að tryggja öryggi allra sem sækja mótið."
FIFA hefur gefið út að öryggismál séu forgangsatriði í kringum mótið og unnið sé náið með yfirvöldum. 78 leikir á HM verða í Bandaríkjunum, í ellefu borgum. Kanada og Mexíkó verða með 13 leiki hvort land.
Athugasemdir


