Robbie Keane, fyrrum leikmaður Tottenham, er tilbúinn að taka við sem stjóri liðsins.
Keane hefur verið orðaður við stöðuna eftir að Thomas Frank var látinn taka pokann sinn í gær. Sky Sports greinir m.a. frá því að Keane hafi áhuga á stjórastöðunni hjá félaginu.
Keane hefur verið orðaður við stöðuna eftir að Thomas Frank var látinn taka pokann sinn í gær. Sky Sports greinir m.a. frá því að Keane hafi áhuga á stjórastöðunni hjá félaginu.
Keane er stjóri ungverska liðsins Ferencvaros en liðið vann deildina undir hans stjórn í fyrra.
Sky Sports segir að Keane sé tilbúinn að taka við Tottenham til lengri tíma en ekki til bráðabirgða.
Keane er 45 ára gamall Íri. Hann spilaði með Tottenham frá 2002-2011 með stuttu stoppi hjá Liverpool í millitíðinni. Hann skoraði 122 mörk í 306 leikjum.
Athugasemdir




