Heimild: Þróttur
Þróttarinn Leó Hrafn Elmarsson er þessa dagana á reynslu hjá danska félaginu Midtjylland. Hann er efnilegur leikmaður sem hefur bæði spilað á miðjunni og í vörninni.
Hann spilar með unglingaliði danska félagsins á Bull's cup í Brasilíu. Þetta kemur fram á heimasíðu Þróttar og þar er talað um að Leó Hrafn sé að taka þátt í æfinga- og kynningarferli.
Hann spilar með unglingaliði danska félagsins á Bull's cup í Brasilíu. Þetta kemur fram á heimasíðu Þróttar og þar er talað um að Leó Hrafn sé að taka þátt í æfinga- og kynningarferli.
Hann er fæddur árið 2010 og skrifaði undir sinn fyrsta samning við félagið í nóvember.
Hann á sex leiki að baki fyrir U15 og U16 landsliðin og var fyrirliði U16 í leik á æfingamóti í Finnlandi í lok september.
Úr frétt á heimasíðu Þróttar
Leó er fæddur árið 2010 og hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands. Hann er örvfættur leikmaður sem leikur vinstra megin á miðjunni, þekktur fyrir mikinn kraft, góðan leikskilning og sterkan karakter á vellinum. Leó hefur vakið athygli fyrir framgöngu sína undanfarin ár og er þetta spennandi tækifæri fyrir hann til að öðlast reynslu í erlendu atvinnuumhverfi.
Þetta tækifæri er jafnframt mikil viðurkenning fyrir öflugt yngri flokka starf Þróttar í Laugardalnum. Það undirstrikar þá fagmennsku og metnað sem lagður er í uppbyggingu ungra leikmanna hjá félaginu.
Þróttur óskar Leó góðs gengis og hlakkar til að fylgjast með framvindu hans á næstu misserum.
Athugasemdir


