Máni Austmann Hilmarsson hefur framlengt samning sinn við Fylki og mun leika áfram með Árbæjarliðinu út keppnistímabilið 2026 hið minnsta.
Máni kom til Fylkis frá Fjölni á miðju tímabili síðasta sumar og spilaði átta leiki í Lengjudeildinni, án þess að skora, en meiðsli komu í veg fyrir að leikirnir og mínúturnar yrðu fleiri.
„Nú er Máni hins vegar búinn að jafna sig að fullu og hefur heillað þjálfarateymið í fyrstu leikjum ársins," segir í tilkynningu frá Fylki en Heimir Guðjónsson tók við Fylkisliðinu í vetur.
„Á ferlinum hefur Máni leikið samtals 210 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 43 mörk, og bindum við miklar vonir við hans framlag á komandi tímabili. Við hlökkum til að sjá Mána skína í appelsínugulu treyjunni í sumar!"
Máni er fyrrum leikmaður Fjölnis, FH, Leiknis, HK, ÍR og Stjörnunnar. Hann hefur verið heitur upp við mark andstæðingana í undirbúningsleikjum Fylkis í vetur.
Fylki var spáð fimmta sæti, umspilssæti, í ótímabæru Lengjudeildarspánni sem sett var saman um síðustu mánaðamót.
Athugasemdir

