Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   fim 12. febrúar 2026 12:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ótrúlegar staðreyndir eftir lokaleik Dyche
Mynd: EPA
Sean Dyche var látinn fara frá Nottingham Forest eftir jafnteflið gegn botnliði Wolves á heimavelli í gær. Vitor Periera, fyrrum stjóri Wolves, er langlíklegastur til þess að taka við liðinu.

Forest hefur einungis fengið níu stig úr síðustu tíu leikjum og er þremur stigum fyrir ofan West Ham í fallbaráttunni.

Forest átti 35 skottilraunir (10 á markið) í leiknum sem er það mesta hjá liði án þess að skora frá því að Manchester United gerði markalaust jafntefli gegn Burnley í október 2016. Þá átti United 38 skot. Forest var með 2,75 í xG í leiknum í gær - liðið hefði því átt að skora tæplega þrjú mörk miðað við tölfræðina.

Önnur mögnuð tölfræði í tengslum við leikinn er sú að Forest var 63% með boltann. Það var í tíunda skiptið á stjóraferli Dyche í úrvalsdeildinni sem liðið hans er meira en 60% með boltann. Þegar það gerist hefur liðinu aldrei tekist að vinna. Þetta var fjórða jafnteflið og sex leikir hafa tapast.

Dyche yfirgefur Forest sem sá stjóri sem er með hæsta sigurhlutfall sem stjóri félagsins á meðan Evangelos Marinakis er eigandi liðsins. Dyche var með 47,1% sigurhlutfall. Steve Cooper er með 43,3% í öðru sætinu og í neðsta sæti á níu manna lista er Ange Postecoglou með 0% sigurhlutfall.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 29 19 7 3 58 22 +36 64
2 Man City 28 18 5 5 57 25 +32 59
3 Man Utd 28 14 9 5 50 38 +12 51
4 Aston Villa 28 15 6 7 38 30 +8 51
5 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
6 Chelsea 28 12 9 7 49 33 +16 45
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 28 12 4 12 40 42 -2 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Brighton 28 9 10 9 38 35 +3 37
13 Newcastle 28 10 6 12 40 42 -2 36
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 28 7 6 15 26 41 -15 27
18 West Ham 28 6 7 15 34 54 -20 25
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner