Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   fim 12. febrúar 2026 10:23
Elvar Geir Magnússon
Postecoglou: Tottenham er ekki stórt félag
Postecoglou segir Tottenham vera forvitnilegt félag.
Postecoglou segir Tottenham vera forvitnilegt félag.
Mynd: EPA
Postecoglou stýrði Tottenham til sigurs í Evrópudeildinni.
Postecoglou stýrði Tottenham til sigurs í Evrópudeildinni.
Mynd: EPA
Ange Postecoglou segir að Tottenham sé ekki stórt félag en hann var gestur í hlaðvarpinu Stick to Football og lét ummælin falla.

Thomas Frank var rekinn frá Tottenham í gær en hann tók við af Postecoglou síðasta sumar. Hann náði ekki að bæta gengi liðsins í ensku úrvalsdeildinni þar sem það situr í 16. sæti.

„Það er erfitt fyrir félagið að vera í þessari stöðu í annað sinn á sex mánuðum. Þetta getur ekki verið eina vandamálið. Tottenham er forvitnilegt félag. Það hafa orðið miklar breytingar og óvissa," segir Postecoglou.

„Það er ekkert öruggt, sama hvaða stjóra þú færð inn. Þeir hafa verið með heimsklassa stjóra en samt ekki náð árangri. Hver er ástæðan? Thomas kemur inn og hver eru hans markmið? Hver eru markmið félagsins? Þegar það verða svona miklar breytingar verður þú að skilja að það verður óstöðugleiki. Vissi Thomas hvað hann var að ganga inn í? Ég veit það ekki."

Eru ekki með stóru strákunum
Postecoglou var rekinn þrátt fyrir að hafa unnið Evrópudeildina og telur að helsta ástæðan fyrir vandamáli Tottenham sé gjá milli metnaðar félagsins og hvað það er tilbúið að eyða á leikmannamarkaðnum.

„Þeir hafa reist stórkostlegan leikvang, ótrúlega æfingaaðstöðu en þegar þú horfir á eyðslu í leikmannakaup og launauppbygginguna þá eru þeir ekki stórt félag. Ég kynntist því sjálfur, þegar við vorum að reyna að kaupa leikmenn þá vorum við ekki samkeppnishæfir um þá."

„Tottenham sem félag segist vera 'eitt af stóru strákunum' en raunveruleikinn er sá að þeir eru það ekki. Svo nær félagið að vinna titil og hvað gera menn? Þeir slíta allt í sundur og byrja aftur frá grunni."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 29 19 7 3 58 22 +36 64
2 Man City 28 18 5 5 57 25 +32 59
3 Man Utd 28 14 9 5 50 38 +12 51
4 Aston Villa 28 15 6 7 38 30 +8 51
5 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
6 Chelsea 28 12 9 7 49 33 +16 45
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 28 12 4 12 40 42 -2 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Brighton 28 9 10 9 38 35 +3 37
13 Newcastle 28 10 6 12 40 42 -2 36
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 28 7 6 15 26 41 -15 27
18 West Ham 28 6 7 15 34 54 -20 25
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner