Kai Havertz og William Saliba eru ekki með Arsenal í kvöld þegar liðið heimsækir Brentford í úrvalsdeildinni.
Havertz er að kljást við vöðvameiðsli en Mikel Arteta var spurður út í hann fyrir leik kvöldsins.
Havertz er að kljást við vöðvameiðsli en Mikel Arteta var spurður út í hann fyrir leik kvöldsins.
„Hann fann smá sársauka eftir leikinn gegn Sunderland. Við þurfum að bíða og sjá hversu lengi hann verður frá," sagði Arteta.
Þá kom á óvart að Saliba var ekki í hópnum í kvöld en hann er fjarverandi vegna veikinda. Arteta var bjartsýnn á að hann yrði klár fljótlega en Arsenal mætir Wigan í enska bikarnum á sunnudaginn.
Það eru góðar fréttir fyrir Arsenal að Bukayo Saka og Martin Ödegaard eru klárir í slaginn og eru á bekknum í kvöld.
Athugasemdir



