Tuchel tekur ekki við Man Utd - Bayern og Chelsea vilja markvörðinn Verbruggen - Bayern vill Stones
   fim 12. febrúar 2026 08:26
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu markið: Uxinn þakkaði Arsenal eftir sigurmark í fyrsta leik
Mynd: Celtic
Alex Oxlade-Chamberlai kom inn sem varamaður á 78. mínútu í sínum fyrsta leik fyrir Skotlandsmeistara Celtic í gær. Hann skoraði sigurmarkið gegn botnliði Livingston 2-1 í uppbótartíma.

Uxinn er 32 ára gamall miðjumaður sem var kynntur sem nýr leikmaður Celtic um síðustu helgi en hann kom til félagsins á frjálsri sölu.

Hann er fyrrum leikmaður Arsenal og Liverpool og sýndi í leiknum í gær að gæðin eru enn til staðar. Markið hans kom frá vítateigsendanum, flott skot í hornið. Það er hægt að sjá hér að neðan.

„Þetta var snilldarmark. Hann hefur átt frábæran feril og hafði úr mörgum félögum að velja þegar hann ákvað að koma hingað og hjálpa okkur. Hann er strax byrjaðu að því. Hann færði okkur þessi þrjú stig," segir Martin O'Neill, bráðabirgðastjóri Celtic.

Oxlade-Chamberlain hafði verið án félags síðan hann yfirgaf tyrkneska félagið Besiktas í ágúst. Hann hefur í vetur haldið sér í formi með því að æfa með sínu fyrrum félagi Arsenal.

„Ég verð að þakka öllum hjá Arsenal fyrir að leyfa mér að æfa og koma mér í form. Ég vissi að ég hefði enn margt fram að færa og það er magnað að fá að spila fyrir svona frábært félag eins og Celtic er," sagði Uxinn en markið hans má sjá hér að neðan.

Tómas Bent Magnússon og félagar í Hearts eru enn á toppi skosku deildarinnar, liðið er með 57 stig. Rangers sem gerði jafntefli gegn Motherwell í gær er með 52 stig og Celtic, sem á leik til góða, er með 51 stig.


Athugasemdir
banner
banner
banner