Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   fim 12. febrúar 2026 15:43
Elvar Geir Magnússon
Staðfesta krossbandaslit Odobert
Wilson Odobert fer undir hnífinn og verður lengi frá.
Wilson Odobert fer undir hnífinn og verður lengi frá.
Mynd: EPA
Tottenham hefur staðfest að vængmaðurinn Wilson Odobert muni gangast undir aðgerð vegna krossbandaslita í vinstra hné.

Þessi 21 árs Frakki meiddist í fyrri hálfleik í 2-1 tapinu gegn Newcastle á þriðjudag.

Hann mun hitta sérfræðinga í næstu viku, áður hann leggst undir hnífinn. Eftir það verður endurhæfingarprógramm teiknað upp með læknateymi félagsins.

Tottenham hefur lent í erfiðum meiðslavandræðum og er í leit að nýjum stjóra eftir að Thomas Frank var rekinn á miðvikudaginn.

Tottenham missti Mohammed Kudus, Richarlison, Rodrigo Bentancur, Lucas Bergvall og Ben Davies í vond meiðsli í janúar. Að auki hefur Jamed Maddison verið frá síðan hann sleit krossbönd í ágúst.

Odobert var keyptur til Tottenham frá Burnley 2024 fyrir um 25 milljónir punda. Hann hefur spilað 33 leiki á þessu tímabili, byrjað 10 úrvalsdeildarleiki og sex af átta leikjum í Meistaradeildinni.

Tottenham er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, aðeins fimm stigum frá fallsvæðinu.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 29 19 7 3 58 22 +36 64
2 Man City 28 18 5 5 57 25 +32 59
3 Man Utd 28 14 9 5 50 38 +12 51
4 Aston Villa 28 15 6 7 38 30 +8 51
5 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
6 Chelsea 28 12 9 7 49 33 +16 45
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 28 12 4 12 40 42 -2 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Brighton 28 9 10 9 38 35 +3 37
13 Newcastle 28 10 6 12 40 42 -2 36
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 28 7 6 15 26 41 -15 27
18 West Ham 28 6 7 15 34 54 -20 25
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner