Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   fim 12. febrúar 2026 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stór reglubreyting í japönskum fótbolta
Japanska landsliðið fagnar marki.
Japanska landsliðið fagnar marki.
Mynd: EPA
J-deildin, japanska úrvalsdeildin, er að fagna 100 ára afmæli sínu um þessar mundir. Til að fagna þessu stórafmæli hefur deildin kynnt risastóra reglubreytingu.

Núna verða engin jafntefli í deildinni því ef leikir enda með jafntefli þá verður gripið til vítaspyrnukeppni sem mun ráða til um sigurvegara.

Samkvæmt reglubreytingunni, sem hefur verið samþykkt, þá mun sigurliðið í vítaspyrnukeppninni fá tvö stig og tapliðið tekur með sér eitt stig.

Sigur í venjulegum leiktíma gefur enn þrjú stig og fyrir tap færðu ekkert.

Þetta verður fyrst um sinn til reynslu en ekki er búið að taka ákvörðun með hvað verður gert fram yfir núverandi tímabil.
Athugasemdir
banner
banner