María Lovísa Jónasdóttir framlengdi á dögunum samning sinn við knattspyrnudeild Gróttu. María Lovísa er 22 ára gamall sóknarmaður sem hefur alla tíð spilað fyrir Gróttu.
María lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Gróttu árið 2019 og hefur verið lykilleikmaður hjá félaginu síðan. María náði þeim merka áfanga árið 2024 að spila sinn 100. leik fyrir félagið en hún hefur spilað 118 leiki fyrir Gróttu.
María Lovísa er næst markahæsta kona félagsins, á eftir Tinnu Bjarkar Jónsdóttur, en hún hefur skorað 31 mark.
Dominic Ankers, þjálfari Gróttu, fagnar því að María hafi enn á ný samið við uppeldisfélagið.
„Það er mjög jákvætt fyrir okkur að leikmaður sem hefur verið hluti af kjarna hópsins svona lengi, og á að baki yfir 100 leiki fyrir Gróttu, hafi ákveðið að framlengja. Við vitum hvað María kemur með að borðinu, bæði innan vallar sem utan, og er hún gríðarlega mikilvægur hluti af hópnum," segir Dominic.
Athugasemdir


