Það er mikill hiti í enska boltanum og annan morguninn í röð er stjóri í úrvalsdeildinni látinn taka pokann sinn. Stjóramál og auðvitað leikmannamál eru til umfjöllunar í slúðurpakkanum í dag.
Thomas Tuchel (52) mun ekki taka við Manchester United en hann hefur komist að samkomulagi við enska fótboltasambandið um að halda áfram sem landsliðsþjálfari Englands til 2028. (Mail)
Roberto De Zerbi (46), sem hætti hjá Marseille í gær, gæti verið opinn fyrir því að taka við Tottenham. Hann ætlaði upphaflega að bíða í von um að fá Manchester United. (TeamTalk)
Tottenham gæti ráðið John Heitinga sem bráðabirgðastjóra út tímabilið. Hann var aðstoðarmaður Thomas Frank sem var rekinn í gær. (Mail)
Bayern München vill fá hollenska markvörðinn Bart Verbruggen (23) frá Brighton í sumar. (TalkSport)
Chelsea hyggst veita Bayern samkeppni um Verbruggen og er tilbúið að ganga að 50 milljóna punda verðmati Brighton. (TeamTalk)
Útlit er fyrir að enski varnarmaðurinn John Stones (31) yfirgefi Manchester City þegar samningur hans rennur út í sumar. Bayern München hefur áhuga. (Caught Offside)
Atletico Madrid hefur áhuga á spænska varnarmanninum Marc Cucurella (27) hjá Chelsea. (Fichajes)
Aston Villa hefur áhuga á enska miðjumanninum Morgan Gibbs-White (26) en Nottingham Forest gæti beðið um 65 milljónir punda fyrir hann. (TeamTalk)
Borussia Dortmund vill að varnarmaðurinn Nico Schlotterbeck (26) skrifi undir nýjan samning. Real Madrid hefur sýnt honum áhuga. (Bild)
Tottenham mun reyna að fá þýska varnarmanninn Antonio Rudiger (32) frá Real Madrid ef Cristian Romero (27) fer til spænska stórliðsins. (Fichajes)
Nottingham Forest mun gera aðra tilraun til að fá belgíska miðjumanninn Arne Engels (22) frá Celtic í sumar. Félagið reyndi við hann í janúar. (Football Insider)
Juventus og Inter munu berjast um ítalska markvörðinn Guglielmo Vicario (29) hjá Tottenham næsta sumar. (Gazzetta)
Manchester United mun reyna að fá senegalska framherjann Iliman Ndiaye (25) frá Everton í sumar. (TeamTalk)
Newcastle er líklegt til að reyna við ítalska miðjumanninn Lorenzo Pellegrini (29) hjá Roma í sumar. Líklegt er að Sandro Tonali (25) fari frá Newcastle. (Football Insider)
Athugasemdir




